Naglasúpa í Bjarmanesi í dag og Opið hús í Nesi
Það verður boðið upp á bragðmikla súpu í dag í kjallara Bjarmaness þegar matarviðburðinum Naglasúpa sem Andrew Rewald verður með hefst kl. 14.00. Allir eru hvattir til að mæta en viðburðurinn stendur til kl. 20:00. Andrew hefur dvalið í Nes listamiðstöð í þrjá mánuði og langar til að deila afrakstri dvalar sinnar með íbúum Skagastrandar og gestum þeirra. Þessa tvo daga mun Naglasúpan bera keim af listrænni túlkun hans á þeim bragðtegundum sem hann hefur upplifað hér á staðnum.
Opið hús verður svo í Nes listamiðstöð milli kl. 16.00 og 18.00 og eru eftirfarandi listamenn með sitthvað skemmtilegt til að sýna:
- -YoganMuller (Frakkl.)) verður hér í 3 mánuði. Hann er ljósmyndari.
- - AndrewRewald (Ástr.) mun elda Naglasúpu fyrir fólk í Bjarmanesi frá kl. 17-20
- -Edyta Materka (USA) er við skriftir í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd.
- -ChrisBoni og Melissa Fisher (Kan.) vinna að undirbúningi kvikmyndar á Skagaströnd sem tekin verður upp í júní.
- -MarlainaRead (Ástr.) er að smíða bát og mun draga hann upp á Spákonufell í næsta mánuði.
- - Herra Plume og StéphanieLetaconoux (Frakkl.) hafa staðið fyrir fjársjóðsleit og opnun á nýjum vegg fyrir samfélagslist.
- -JahnnePasco-White (Ástr.) vinnur með höggmyndir og innsetningar.
- -KelseyBosch (USA) vinnur með blandaðri tækni að list sinni.
- -KirstenKeegan (Kan.) stundar kvikmyndagerð og ljósmyndun
Allir velkomnir!