Náms- og akstursstyrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi

Sveitarstjórn Skagastrandar tók ákvörðun við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015 um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2014-2015. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk.

Á vef Skagastrandar segir að umsóknum um styrki skuli skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 31. mars næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verði ekki teknar til greina.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðu þess og þar má einnig finna umsóknareyðublöð.

Akstursstyrkur vegna dreifnáms

Jafnframt er auglýstur frestur til 1. maí 2015  til að sækja um sérstakan stuðning vegna dreifnáms fyrir vorönn 2015. Sveitarstjórn samþykkti reglur um stuðning vegna dreifnáms veturinn 2014-2015 á fundi 12. september 2014 og vísast til þeirra á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir