Námskeið helgarinnar
Farskólinn- miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra stendur fyrir margvíslegum námskeiðum í haust. Um helgina verður boðið upp á námskeið í sveppatínslu fyrir íbúa Blönduósar og Skagastrandar og námskeið í fatasaum á Sauðárkróki.
Á námskeiðinu í sveppatínslu verða kynntir þeir helstu matsveppir sem finnast á Íslandi. Þátttakendur fara út í nærliggjandi skóglendi ásamt kennara og verður kennt að velja réttu sveppina og aðferðir við tínslu og hreinsun þeirra. Einnig fá þeir leiðbeiningar um hvernig best sé að geyma sveppina og matreiða þá.
Námskeiðið í fatasaum er einstaklingsmiðað og skiptir því ekki öllu máli hvort viðkomandi sé byrjandi eða lengra kominn. Farið verður yfir helstu aðtriðin varðandi saumaskap, hvernig á að taka upp snið og breyta þeim.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Farskólans.