Námskeið í klippimyndagerð
Námskeið í klippimyndagerð verður haldið hjá Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Fer það fram í dag, fimmtudaginn 28. júlí frá kl. 17 – 22.
Saga klippimyndagerðar verður skoðuð, sýnd dæmi og svo fá þátttakendur tækifæri til að spreyta sig sjálfir. Þeir sem vilja taka þátt eru hvattir til að koma með þau áhöld og efni sem þeir vilja nota, t.d. pappírslím, skæri, pappír, karton og dagblöð og tímarit til að klippa úr.
„Listræn notkun á klippimyndum kom fram í byrjun tuttugustu aldar og dreifðist sem byltingarkennd tækni bæði í list og pólitískum áróðri. Frá dadaisma til pönks hafa klippimyndir verið tengdar stefnum sem takast á. Núna eru klippimyndir orðnar táknmynd fyrir post modernisma sem fjölhyggjustefna sem hentar blöndun í nýtíma menningu. “Klippa”, “afrita” og “líma” úr fjöllaga notendaviðmóti er hluti af okkar daglega lífi.“ (Tekið af vef Nes listasmiðjunnar).
Dagskrá:
17:00 - 19:00 Saga klippimynda / sýndar stuttmyndir / grunn hugtök
19:00 - 19:30 Matarhlé
19:30 - 22:00 Klippimyndagerð
Námskeiðið fer fram í húsnæði Ness listamiðstöðvar að Fjörubraut 8, Skagaströnd. Áhugasamir hafi samband í síma 8987877 eða olafia@neslist.is