Námskeið í skinna- og leðursaumi
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
03.09.2013
kl. 13.57
Haldið verður námskeið í skinna- og leðursaumi í október á vegum FNV. Nemendur læra m.a. sniðagerð, saumaskap og umhirðu á leðri og mokkaskinnum. Kennsla fer fram á saumastofu Loðskinns ehf á Sauðárkróki og stendur yfir 1.- 11. október. 1.-4. okt er kennt frá kl. 17:00-21:00, 5. okt frá kl. 11:00-15:00 og 7.-11. okt. frá 17:00-21:00.
Kennari er Anna Jóhannesdóttir. Nánari upplýsingar um námskeiðið fást á skrifstofu skólans