Námskeið um kubba í leik- og grunnskólastarfi
Fræðsluskrifstofa Austur-Húnavatnssýslu stóð fyrir námskeiði í gamla kólahúsinu Bjarmanesi Skagaströnd mánudaginn 7. febrúar s.l. en viðfangsefni námskeiðsins var að kynna hvernig nýta má einingarkubba í leik- og grunnskólastarfi. Fyrirlesarar voru Guðlaug Grétarsdóttir og Lilja G. Ingólfsdóttir, leikskólakennarar leikskólans Barnabóls Skagaströnd.
Fræðileg og verkleg framsetning kennaranna féll í góðan jarðveg og þátttakendur lærðu mikið og höfðu gaman af á námskeiðinu.
Með einingakubbum má þjálfa röðun og flokkun, hugtakaskilning, lögmál eðlisfræðinnar, þyngd, stöðugleika og jafnvægi. Einnig gagnast einingakubbar til að þjálfa gróf- og fínhreyfingar, samhæfingu handa og augna og skapandi og sjálfstæða hugsun. Einingakubbarnir eru stærðfræðilega réttir, sem gerir börnunum kleift að læra hugtök stærðfræðinnar í leik.
Einingakubba má nota fyrir alla aldurshópa nemenda í leik- og grunnskóla. Höfundur þeirra er Caroline Pratt og hefur hugmyndafræði hennar skírskotun í hugmyndafræði John Dewey sem var bandarískur heimspekingur, sálfræðingur og uppeldisfrömuður.
/Skagaströnd.is