Nánast jafnmargir slösuðust í fyrra og 2009

Við skoðun á umferðarslysum í Norðurlandskjördæmi vestra eins og kjördæmaskipan var áður kemur í ljós að nánast jafnmargir slösuðust og létust á svæðinu á síðasta ári eins og árið 2009.  Þetta kemur fram í nýútkominni slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2010. 

Samtals slösuðust 92 á síðasta ári, en þeir voru 94 árið á undan.  Einn lést bæði árin.  Langflestir slösuðust í slysum sem urðu utanbæjar á svæðinu eða 86 árið 2010 og allir sem urðu fyrir alvarlegum meiðslum urðu fyrir þeim í slysum utan þéttbýlis.  Af þeim fimm sem urðu fyrir meiðslum í þéttbýli slösuðust 3 á Siglufirði, 1 á Sauðárkróki, 1 á Blönduósi og 1 á Hólmavík.  Þar með slasaðist enginn í umferðinni á fimm stöðum á svæðinu á síðasta ári.

Í slysaskýrslu Umferðarstofu sem hægt er að finna á heimasíðunni www.us.is er kort yfir slysastaði aðgengilegt fyrir almenning.  Þar er hægt að sjá nákvæma staðsetningu slysa á undanförnum fjórum árum.

Fleiri fréttir