NATA styrkir
NATA auglýsir eftir styrkumsóknum til samstarfsverkefna á sviði ferðaþjónustu eða til kynnis- og námsferða 2014. NATA styrkir samstarf á milli Íslands, Grænlands og Færeyja.
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna geta sótt um styrki til samstarfsverkefna á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu:
- Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna
- Til nýsköpunar- og vöruþróunarverkefna
- Til þekkingarheimsókna og miðlunar gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila
- Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar
Hámarksstyrkur til verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar.
Til kynnis- og námferða er um að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds. Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða:
- Skóla
- Íþróttahópa
- Tónlistarhópa
- Annars menningarsamstarfs
Nánari upplýsingar á íslensku má finna á vef Ferðamálastofu.