Nauðhemlaði er lamb hljóp yfir veginn
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
15.06.2015
kl. 17.58
Harður árekstur varð rétt austan við gatnamótin að Lækjarmótum á þjóðveginum um kl. 14:30 í gær. Samkvæmt frétt Mbl.is átti áreksturinn sér stað þegar bíll nauðhemlaði er lamb hljóp yfir veginn. Í kjölfarið lenti bíllinn á eftir honum hinum megin á veginum og framan á öðrum bíl.
Haft er eftir lögreglunni á Blönduósi að ökumaður annars bílsins hafi verið fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi en hinn á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi. Ekki lágu fyrir nánari upplýsingar um líðan þeirra.