Nei, nei, ekki um jólin

Askasleikir er jólasveinn númer sex í röðinni. Fyrr á öldum, þegar fólk mataðist enn úr öskum, faldi hann sig gjarnan undir rúmum. Þegar askarnir voru lagðir fyrir hunda og ketti til að leyfa þeim að sleikja, varð Askasleikir fyrri til, krækti í þá og hreinsaði innan úr þeim.Tekið af mjolk.is.

Það verður nú að segjast eins og er að hrollur fer um mann þegar hugsað er til þeirrarsiðar fyrr á öldum að láta hunda og ketti sleikja matarílátin til að hreinsa þau. Nei, nei, alla vega ekki um jólin. Það er akkúrat nafnið á laginu sem Björgvin Halldórsson syngur ásamt flottum jólagestum hans á síðasta ári og hægt er að nálgast hér fyrir neðan.

Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus‐
Hann fram undan rúmunum
Rak sinn ljóta haus. 

Þegar fólkið setti askana
Fyrir kött og hund, 
Hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa  lund.

Á heimasíðu Jólamjólkur er hægt að finna flottar jóla og hátíðaruppskriftir. Sjá HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir