Neistafélagar á Fjórðungsmóti

Líkt og önnur hestamannafélög á Norðurlandi vestra á Neisti í Austur-Húnavatnssýslu fulltrúa á Fjórðungsmótinu á Kaldármelum. Keppni er hörð á mótinu, eins og fylgjast má með á fésbókarsíðu mótsins og á vefnum http://fm.lhhestar.is/.

Harpa Birgisdóttir og Katla frá Kornsá eru í B-úrslitum í ungmennaflokki með einkunnina 8,10, Sigurður Bjarni Aadnegard og Prinsessa frá Blönduósi eru í B-úrslitum í unglingaflokki með einkunnina 8,18, Lára Margrét Jónsdóttir og Leiðsla frá Hofi eru í B-úrslitum í barnaflokki með einkunnina 8,17.

Í B-flokki urðu Gítar frá Stekkjardal og Jakob Víðir Kristjánsson 23. sæti með einkunnina 8,33 en sá sem komst í B-úrslit var með einkunnina 8.36 svo það má litlu muna.

Fleiri fréttir