Neisti leggur nýja reiðvegi

Reiðveganefnd hestamannafélagsins Neista lagði í sumar fram erindi til skipulags, byggingar- og veitunefndar Blönduósbæjar þar sem óskað var eftir afstöðu Blönduósbæjar til lagningar reiðvegar vestan Svínvetningabrautar, vestur undir hitaveitulögn, til suðurs meðfram hitaveituæð að landamerkjagirðingu við Hjaltabakka og þaðan austur með girðingunni áleiðis að veiðihúsi Laxár á Ásum.

Þar kom einnig fram að uppi voru áform að bæta reiðveginn sem liggur frá Svínvetningabraut að landamerkjagirðingu og tengjast þar með þeirri leið sem fjallað er um hér að ofan og að auki að kanna hvort hægt væri að gera reiðleið vestan Svínvetningabrautar frá hesthúsabyggð að áðurnefndri reiðleið.

Skipulags-, byggingar- og veitunefndin tók erindi reiðveganefndar fyrir á fundi og samþykkti uppbyggingu þeirra í samræmi við skipulag. Þessar framkvæmdir hafa nú verið hafnar og unnið er að því að reiðvegir liggi til allra átta og vonandi lýkur framkvæmdum fyrir veturinn.

Fleiri fréttir