Nemandi úr Grunnskóla Fjallabyggðar hreppti fyrsta sætið
Úrslitakeppni Stærðfræðikeppninnar fór fram í sal Bóknámshúss FNV í dag. Það var Björn Vilhelm Ólafsson, Grunnskóla Fjallabyggðar sem hreppti fyrsta sætið. Í öðru sæti var Páll Halldórsson, Höfðaskóla og í þriðja sæti var Guðjón Alex Flosason, Grunnskólanum á Hólmavík.
Samkvæmt heimasíðu FNV hefur keppnin verið haldin árlega í 17 ár. Undankeppni stærðfræðikeppninnar fór fram í mars og tóku 170 nemendur frá Norðurlandi vestra, Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni. Að þessu sinni komust 15 nemendur í úrslitakeppnina.
„Af þeim voru tveir frá Árskóla, tveir frá Varmahlíðarskóla, einn frá Grunnskólanum austan Vatna, einn frá Grunnskólanum á Hólmavík, einn frá Húnavallaskóla, tveir frá Höfðaskóla, einn frá Blönduskóla, þrír frá Grunnskóla Fjallabyggðar og tveir frá Dalvíkurskóla. Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni FNV, grunnskóla, stofnana og fyrirtækja á Norðurlandi vestra auk þess sem fyrirtæki utan kjördæmisins koma að verkefninu. Kennarar í stærðfræði við FNV báru hitann og þungann af samningu og yfirferð keppnisgagna, en grunnskólarnir sáu um fyrirlögn dæmanna í undankeppninni,“ segir um framkvæmd keppninnar á heimasíðu FNV.
Fjölmargir styrktaraðilar komu að keppninni með einum eða öðrum hætti og voru vegleg verðlaun í boði, nánar um þau má sjá á heimasíðu skólans.