Nemanja Đurišić er kominn í Tindastól!

Nemanja. MYND AF NETINU
Nemanja. MYND AF NETINU

„Við erum gríðarlega ánægð að tilkynna að Nemanja Đurišić hefur gengið til liðs við Tindastól,“ segir í rilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem birt var í hádeginu. Nemanja er 2,03 m hár framherji með mikla reynslu.

„Hann lék háskólakörfubolta með University of Georgia í Bandaríkjunum áður en atvinnumannaferillinn hófst árið 2015. Síðan hefur hann leikið í sterkum deildum víða um Evrópu, meðal annars með Zielona Góra, þar sem hann var liðsfélagi Dee Bost, Telekom Baskets Bonn, Oostende, Beşiktaş, Estudiantes, Stal Ostrów Wielkopolski og Nizhny Novgorod. Hann hefur jafnframt verið hluti af landsliði Svartfjallalands.“

Þá segir í tilkynningunni að á ferlinum hefur Nemanja unnið meistaratitla í Póllandi og Belgíu, pólska bikarinn og Ofurbikarinn, auk ENBL-deildarinnar.

„Nemanja kemur fullur af krafti inn í hópinn og við hlökkum mikið til að sjá hann í Tindastólstreyjunni. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í Tindastólsfjölskylduna!“

 

Fleiri fréttir