Nemar í búfræðum bjóða fram þjónustu sína
Verðandi búfræðingar við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri bjóða fram þjónustu sína við hin ýmsu búverk. „Höfum á okkar snærum smiði, rafvirkja, vélvirkja, ýmiskonar véla- og tækjamenn, fjölvirkja, barþjóna, rennismiði, smala og slátrara svo fátt eitt sé nefnt. Getum einnig tekið að okkur ýmiskonar afleysingar, allt nema tæma rotþrær,“ sagði Alda L. Har nemi við Landbúnaðarháskólann.
Um er að ræða fjáröflunarleið hefur verið notuð í nokkur mörg ár í búfræðinni og er hugmyndin sú að nýta þá kunnáttu, færni og hæfileika sem nemendur á öðru námsári í búfræði búa yfir og afla fjár í ferðasjóð.
„Við erum ekki bundin við neitt ákveðið landssvæði, en þar sem við erum á Hvanneyri þá reynum við að skipuleggja okkur þannig að ef við fáum verkefnin langt frá þá vinnum við það frekar um helgar. Stærð verkefnisins skiptir líka máli. Við tökum á móti öllum tilboðum um verkefnum og eru þau svo borin undir hópinn. Ef hópurinn er tilbúinn í að vinna verkið (hefur tök á því, út af skóla og öðru) þá er það unnið með bros á vör,“ sagði Alda.
Hópurinn útskrifast í vor og að sögn Öldu er ekki enn ákveðið hvert ferðinni verður haldið, „enda stór hópur með rosalega margar hugmyndir um hvert eigi að fara. Það eina sem búið er að ákveða er að fara út fyrir landssteinana,“ bætir hún við.
Fyrirspurnir skulu berast til Kjartans á Veggjum, s. 8478408 eða Valda á Skarði, s. 6917036. Frjáls framlög eru líka vel þegin.