Nemendafélagið ósátt vegna Söngkeppni framhaldsskólanna

Stjórn Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra er afar ósátt við hvernig mál hafa þróast vegna Söngkeppni framhaldsskólanna en hún hefur tekið breytingum frá því sem verið hefur. Lögin verða nú tekin upp og sýnd á Mbl.is og þeim gefið atkvæði með sms kosningu.

Keppnin hefur verið haldin á Akureyri síðustu fimm ár og tekist vel að flestra mati en nú er ætlunin að hún fari fram í Reykjavík. Þeir tólf flytjendur sem fá flest atkvæði fá að taka þátt í aðalkeppninni sem fram fer 21. apríl í beinni útsendingu á RÚV en ljóst má vera að fjölmennustu skólarnir hljóta að hafa forskot á hina smærri í sms kosningu.

Nemendafélagið FNV hefur sagt sig úr Sambandi íslenskra framhaldsskólanema og í yfirgripsmikilli yfirlýsingu sem það sendi frá sér er skorað á stjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema að segja af sér í kjölfar mislukkaðra breytinga.

Fleiri fréttir