Nemendur Höfðaskóla rannsaka vesturferðirnar

Fyrsta vika marsmánaðar var þemavika í Höfðaskóla á Skagaströnd. Þá unnu nemendur með margs konar fróðleik um vesturferðir Íslendinga fyrir og eftir aldamótin 1900. Afrakstur vinnunnar var síðan sýndur á stórri sýningu í íþróttahúsinu í lok vikunnar.

Á Skagaströnd.is segir að nemendum hafi verið skipt í sjö hópa þar sem hver hópur vann með ákveðið efni sem snertir vesturferðirnar. Hóparnir skoðuðu vesturferðirnar frá sjö sjónarhornum sem voru: ástæður ferðanna, ferðalagið sjálft, bústaðir fyrstu árin í nýja landinu, samskiptin við frumbyggjana/indíánana, þekktir staðir sem Íslendingar fluttust til, nokkrir þekktir Vestur-Íslendingar og einn hópurinn nýtti sér vitneskju sína til að búa til trúverðugar frásagnir af fjölskyldum sem fluttu til Vesturheims.

Öllu þessu gerðu hóparnir síðan góð skil með plakötum, líkönum, myndum, ljóðum, söng og leikþáttum á opinni sýningu fyrir hádegi á föstudag. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans fjölmenntu á sýninguna og höfðu margir á orði hve vel heppnuð og yfirgripsmikil hún væri.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir