Nemendur í FNV sigra í stuttmyndasamkeppni
Nemendur í kvikmyndagerð við FNV á Sauðarkróki gerðu það gott á „Stullanum“, stuttmyndasamkeppni sem fram fór á Akureyri um helgina en þeir áttu myndir í fyrsta og öðru sæti. Sýning verður á myndunum í Húsi frítímans í kvöld klukkan átta og allir velkomnir.
Í fyrsta sæti var myndin „Sleepy Horror“ eftir Blönduósingana Kolbein Guðmundsson og Martein Pálsson og Aðalheiði Sigurdórsdóttur frá Akranesi. Myndin byggir á handriti eftir Kolbein en hann leikstýrði henni einnig. Guðbrandur J. Guðbrandsson, Gubbi, þykir sýna stórleik í myndinni sem hægt er að sjá HÉR.
Í öðru sæti var myndin „Andlit á glugga“ eftir Bergþór Smára Pálmason undir leikstjórn Halldórs Ingólfssonar, en hún er stuttmynd sem flokkast undir thriller. Um myndina er sagt að Ester passar litlu systur sína eitt kvöld ásamt kærasta sínum Daníel. Kvöldið virðist fara vel og Alma litla hagar sér vel en.... Bergþór Smári er ættaður af Sauðárkróki en búsettur í Reykjavík og Halldór er frá Hólum í Hjaltadal.
Sjá má myndina HÉR.
Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður var afskaplega stoltur af nemendum sínum en hann hefur séð um kvikmyndahópinn í FNV í vetur. Ellefu nemendur stunduðu námið á haustönn en allt bendir til að 17 nemendur verði eftir áramótin. Árni segir gaman að geta þess að þau sem skipuðu sigurliðið komu öll FNV í haust gagngert í kvikmyndanámið.