Nemendur kynnast atvinnulífi á NLV

Hópur nemenda FNV sótti Iceprotein heim í síðustu viku til að vinna gæðamat á léttsöltuðum þorskflökum. Verkefnið er hluti af áfanganum FNV103 en þar kynnast nemendur atvinnulífi á Norðurlandi vestra.

Á heimasíðu skólans kemur fram að hver hópur fékk þrjú flök til að skoða. Í gæðamatinu voru flökin metin með fjölbreyttum hætti: sjónrænt mat, vatnstap við suðu, skynmat (lykt, bragð og áferð) og efnagreining. Eftir ítarlega rannsókn taka nemendurnir niðurstöður sínar saman í skýrslu.

Fleiri fréttir