Nemendur úr FNV næsthæstir í lögfræði
Lítill munur er á einkunnum nemenda við Háskóla íslands þegar búið er að greina þær eftir framhaldsskólum. Þetta kemur fram í samantekt frá Kennslusviði Háskólans. Þá kemur fram að nemendur FNV eru með næsthæstu einkunn í lögfræði við HÍ, fast á hæla nemenda úr MR.
Á meðan sumir skólar gera einungis kröfu um lágmarkseinkunn á tíundabekkjarprófi þegar þeir velja inn nemendur gera vinsælustu skólarnir kröfur um mjög háar einkunnir. Eins og komið hefur fram í DV vildi rúmlega þriðjungur tíundu bekkinga sem útskrifaðist í vor vildi komast inn í fjóra vinsælustu framhaldsskólana, Verslunarskólann, Menntaskólann við Hamrahlíð , Kvennaskólann og Menntaskólann í Reykjavík. Inn í þessa skóla er lítil von fyrir grunnskólanema sem eru með undir átta í meðaleinkunn á tíundabekkjarprófi að komast. Það mætti því draga þá ályktun að nemendum sem útskrifast úr þessum skólum hljóti að vegna mun betur í námi við HÍ en þeim sem koma úr öðrum skólum. Þeir standa sig ágætlega, eru í flestum greinum með hærri einkunn en meðaltalið segir til um en munurinn er ekki ýkja mikill.
Kennslusvið Háskóla Íslands hefur skoðað dreifingu einkunna grunnnema við skólann frá 2008 til 2011. Í rannsókninni voru lokaeinkunnir í námskeiðum rúmlega 16 þúsund einstaklinga skoðaðar. Lögfræðin hefur í áranna rás verið ein af vinsælli greinunum í Háskólanum. Meðaleinkunn í greininni var 5.70. Þegar einstakir skólar eru skoðaðir eru nemendur sem útskrifuðust úr MR með hæstu meðaleinkunnina 6,42 en á hæla þeirra koma stúdentar sem útskrifuðust úr Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra með 6,22.
Lægstu meðaleinkunnina áttu hins vegar nemendur sem útskrifuðust úr frumgreinadeild Keilis, 4,11. Meðaleinkunn í íslensku og menningardeild var 6,87. Lægsta einkunn var 6,14 hana áttu nemendur sem útskrifuðust úr Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Hæsta meðaleinkunnin var meðal nemenda sem útskrifuðust frá MR 7,60 á hæla MR-inga koma nemendur sem útskrifuðust frá Menntaskólanum á Ísafirði með 7,45 og nemendur sem útskrifuðust frá Menntaskólanum á Akureyri með 7,40.