Nes listamiðstöð á Eyrarrósarlistanum

Nú hefur verið birtur listi yfir þau tíu verkefni sem eiga möguleika á því að hljóta Eyrarrósina í ár, en Nes listamiðstöð á Skagaströnd er meðal þeirra. Mikill fjöldi umsókna um Eyrarrósina barst hvaðanæva af landinu. 

Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunnar. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík.

Verkefnin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Þann 18. mars næstkomandi verður tilkynnt hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Eyrarrósarlistinn 2015
* Braggast á Sólstöðum
* Ferskir vindar
* Frystiklefinn
* Listasafn Árnesinga
* Listasafnið á Akureyri
* Nes Listamiðstöð
* Orgelsmiðjan á Stokkseyri
* Verksmiðjan á Hjalteyri
* Þjóðlagasetrið á Siglufirði

Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn laugardaginn 4.apríl næstkomandi á Ísafirði. Að venju mun Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhenda verðlaunin.

Fleiri fréttir