Nes listamiðstöð auglýsir eftir aðstoðarmanni frá 1. - 30. september 2012

Hlutverk aðstoðarmannsins er að hjálpa til við að undirbúa KUL listahátíð sem fram fer í lok september. Verkefnið felst í að aðstoða listamenn og matreiðslumenn við að finna nauðsynjar fyrir hátíðina, aka þeim milli staða, aðstoða við uppsetningu listaverka og kynningu hátíðarinnar. Vinnutími er breytilegur og fer ekki yfir 20 klst. á viku. Enskukunnátta er nauðsynleg.

Nes leitar að einstaklingi sem er listamaður eða hefur mikinn áhuga á listum. Markmiðið er að veita ungum einstaklingi, sem hefur áhuga á listum sem framtíðarstarfi,  reynslu og stuðning. Aðstoðarmaðurinn fær greiddar 60.000 kr. vegna útgjalda.

Nes listamiðstöð býður væntanlegum aðstoðarmanni upp á frítt húsnæði og vinnuaðstöðu en ferðir og uppihald eru á eigin kostnað. Verkefnið gæti leitt til framtíðarstarfs við að aðstoða listamenn sem dvelja í Nes listamiðstöð.

Nes listamiðstöð hvetur listamenn og/eða áhugafólk um listir að sækja um. Ekki er krafist reynslu á þessu sviði en áhugi á listum og matreiðslu er nauðsynlegur.

Nánari upplýsingar veitir Melody Woodnutt framkvæmdastjóri Nes listamiðstöðvar á netfanginu nes@neslist.is .

Upplýsingar um KUL hátíðina má sjá á veffanginu: http://neslist.is/application/call-for-artists/

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir