Neyðarbrautin á Reykjavíkurflugvelli í fullri notkun

Í dag er vonskuveður í Reykjavík, skyggni lélegt og sterkur vindur úr suðvestri. Við þessar aðstæður er neyðarbrautin nýtt á Reykjavíkurvelli til flugtaks og lendinga. -Ef brautin væri ekki til staðar væri ófært á völlinn í þessum veðurskilyrðum, segir í tilkynningu frá samtökunum Hjartað í Vatnsmýrinni.

-Þrátt fyrir þessar staðreyndir ætlar Reykjavíkurborg með fullum stuðningi innanríkisráðherra að loka neyðarbrautinni fyrir árslok og útiloka þannig lendingar sjúkraflugvéla í Reykjavík í veðurskilyrðum líkt og þeim sem sjá má í dag. Staða flugvallarins er alvarleg þar sem lokun brautarinnar bitnar á þeim sem nauðsynlega þurfa að komast til Reykjavíkur t.d. með sjúkraflugi í vondum veðrum, segir ennfremur í tilkynningunni.

Fleiri fréttir