Niðurstöður rannsóknarverkefna kynntar
Boðað er til kynningarfundar um niðurstöður á rannsóknarverkefnum sem voru unnin á árinu 2013, á vegum Farskólans á Norðurlandi vestra og Þekkingarseturs á Blönduósi. Um er að ræða annars vegar þarfagreiningu á námsframboði á NLV og hins vegar tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig á NLV.
Kynningarfundurinn er öllum opinn og verður haldinn miðvikudaginn 26. mars kl. 20:00 í húsnæði Farskólans á Sauðárkróki.
Fulltrúar Farskólans verða á fundinum til að kynna nám og námskeið og svara fyrirspurnum í tengslum við niðurstöðu þarfagreininganna. Rannsóknirnar eru liður í eflingu menntunar og atvinnulífs á svæðinu og því er mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að mæta. Gert er ráð fyrir að kynningin taki um 45 mínútur og síðan verða umræður á eftir. Það verður heitt á könnunni og allir eru boðnir velkomnir.