Niðurstöður úr stofnstærðarmati á landsel
Stofnstærðartalning á landsel við Íslandsstrendur fór fram í júlí til september sl. á vegum Selaseturs Íslands. Flogið var yfir alla landshluta og sjáanlegir selir taldir en markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um stöðu íslenska landselsstofnsins.
Fram kemur á heimasíðu Selaseturs Íslands að þetta hafi verið tíunda heildartalning landsela úr lofti sem hefur farið fram hérlendis, en slíkar talningar hófust árið 1980. Þótti það mjög brýnt að hafa talningu í ár þar sem ekki hefur verið ráðist í talningu frá því árið 2006.
Flogið var yfir alla landshluta allt að þrisvar sinnum og fjöldi sjáanlegra landsela talin í öllum látrum. Hingað til hefur aðeins verið flogið einu sinni og talningin 2011 er því sú viðamesta fram til þessa.
Samkvæmt niðurstöðum talingannna sáust að meðaltali um 4512 landselir, en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006. Benda þessar niðurstöður til þess að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003 þrátt fyrir síminnkandi veiðar. Skýringar á því geta verið margvíslegar, m.a. slysaveiðar á sel í fiskinet.
Samstarfsaðilar verkefnisins voru Veiðimálastofnun, Rannsjá, BioPol og Hafrannsóknarstofnun. Verkefnisstjóri flugtalningarverkefnisins er Sandra Granquist, starfsmaður Veiðimálastofunnar og Selaseturs Íslands, en meðverkefnastjóri og aðaltalningarmaður var Erlingur Hauksson hjá Rannsjá. Í verkefninu tóku einnig þátt Arna Björg Árnadóttir, sumarstarfsmaður Veiðimálastofunnar og Jacob Casper starfsmaður Hafró og BioPol á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Verkefnasjóð Sjávarútvegsráðuneytisins.