Nóg að gera í vegaeftirliti lögreglunnar
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði sjö ökumenn sem voru á yfir 120 km hraða í gær en sá þeirra sem hraðast ók var á 141 km hraða. Þetta kemur fram á Mbl.is. og segir þar að sá ökumaður hafi verið erlendur ferðamaður. Fékk hann 90.000 króna sekt fyrir þennan glæfraakstur.
Lögreglan hafði í nógu að snúast í vegaeftirlitinu í umdæminu því fimm ökumenn voru stöðvaðir á yfir 120 km hraða og einn með aftanívagn var stöðvaður á 123 km hraða en hámarkshraði ökutækis með aftanívagn er 80 km/klst.