Nokkuð um laus störf á Norðurlandi vestra

Skráð atvinnuleysi á landinu í júní var 4,8% en að meðaltali voru 8.704 atvinnulausir í júní og fækkaði atvinnulausum um 1.122 frá maí eða um 0,8 prósentustig samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Vinnumálastofnunar var 181.527 í júní 2012. Á Norðurland vestra voru 50 skráður án vinnu þann mánuð eða um 1,2% sem er fækkun frá fyrri mánuði en þá voru þeir 81 og 92 í júní 2011.

Laus störf í lok júní á Norðurlandi vestra voru skráð hjá VMST 30 en alls 302 yfir landið. Nú er auglýst á heimasíðu stofnunarinnar laus störf í sláturhúsum í haust, Tryggingamiðstöðin auglýsir eftir umboðsmanni fyrir félagið á Hvammstanga og Höfðaskóli á Skagaströnd vantar stuðningsfulltrúa veturinn 2012 – 2013.

Þá er hægt að sjá á heimasíðu Svf. Skagafjarðar að staða smíðakennara við Varmahlíðarskóla er laus sem og staða umsjónarkennara við Árskóla. Þá auglýsir Iðja-Hæfing eftir starfsmanni og leikskólakennara vantar við Ársali.

Fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra auglýsir svo eftir leikskólakennara í 60% starf frá 15. ágúst á Borðeyri.

Fleiri fréttir