Norðanáttir í kortum fram yfir helgi
Spáin gerir ráð fyrir hægri norðaustlægri eða breytilegri átt. Sums staðar þokuloft við ströndina, en hætt við síðdegisskúrum í innsveitum í dag. Áfram hægur vindur á morgun og bjart með köflum. Hiti 7 til 15 stig.
Svipað veður verður næstu daga og ekki gert ráð fyrir að áttin fari að snúa sér fyrr en á mánudag.