Norðlæg átt og greiðfærir vegir
Um tíuleytið í morgun voru allir vegir á Norðvesturlandi greiðfærir og vindhraði á helstu akstursleiðum frá 3 og upp í 10-11 metra á sekúndum. Enn er varað við vegskemmdum á Þverárfjalli en þegar Feykir átt leið þar um á föstudaginn var unnið að viðgerð þeirra.
Veðurstofan spáir norðlægri átt á Ströndum og Norðurlandi vestra, 8-13m/s. Súld eða dálítil rigning með köflum, en heldur hægari á morgun og þurrt að kalla. Hiti 3 til 8 stig.