Norðurlandsmótaröðin að hefjast

Norðurlandsmótaröðin í golfi hefst á sunnudaginn kemur,  30.júní, á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Mótið er flokka- og kynjaskipt og geta allir sem skráðir eru í golfklúbb á Norðurlandi tekið þátt. Viðurkenning fyrir flesta punkta með forgjöf á 18 holu flokkunum, virk forgjöf er skilyrði.

Mótið hefst kl 8:00 á sunnudagsmorgni. Fyrst verða elstu ræstir út og yngstu síðast. Ræst verður í tvennu lagi og verðlaunaafhending verður einnig í tvennu lagi.  Mótið er fyrir alla, byrjendur sem lengra komna.

Mótið er flokkaskipt og kynjaskipt.  Þó ber að árétta að til að geta tekið þátt í mótunum verða keppendur að vera skráðir í einhvern golfklúbb á Norðurlandi. Þá er líka rétt að benda á að þeir sem að taka þátt í byrjendaflokki mega ekki vera búnir að fá forgjöf.  Ef keppandi sem byrjar t.d. fyrsta mót í byrjendaflokki fær síðan forgjöf fyrir næsta mót þá þarf viðkomandi að fara í sinn aldursflokk á næsta móti.

Flokkarnir eru þessir:

17-18 ára piltar og stúlkur – 18 holur

15-16 ára drengir og telpur – 18 holur

14-ára og yngri strákar og stelpur – 18 holur

12 ára og yngri strákar og stelpur sem spila 9 holur

Byrjendaflokkur strákar og stelpur spilar 9 holur af sérstaklega styttum  teigum

Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is. Nándarverðlaun verða veitt og vippkeppni í öllum flokkum. Viðurkenning fyrir flesta punkta með forgjöf á 18 holu flokkunum, virk forgjöf er skilyrði.

Fleiri fréttir