Notaleg og fræðandi samverustund í Kvennaskólanum

Sunnudaginn 15. maí klukkan þrjú mun Catherine Chambers halda stuttan fyrirlestur um fisk, fiskveiðar og sjóinn í Íslendingasögunum í Kvennaskólanum á Blönduósi.

Catherine er doktorsnemi við Háskólann í Alaska og kemur til með að vinna við Háskólasetrið á Blönduósi. Í lok fyrirlestursins býður hún svo gestum að smakka lax frá Alaska og Aðalbjörg Ingvarsdóttir, formaður Vina Kvennaskólans, mun bjóða uppá leiðsögn um Kvennaskólann.

Fleiri fréttir