Notalegheit í Blönduskóla

Foreldrafélag Blönduskóla heldur jóla–notalegheit í Blönduskóla í dag milli klukkan 17 og 19. Þá mæta foreldrar og börn, ömmur og afar og allir hinir og eiga notalega stund saman við að föndra jólakort, mála piparkökur og nokkrir unglingar verða með spilastöð og kenna á spil. Pappír og ýmislegt fleira til jólakortaföndurs verður á staðnum en allir eru hvattir til að koma með liti, lím, skæri og fleira sem skemmtilegt er að nota til kortagerðar. Hægt verður að kaupa piparkökur og verður boðið upp á glassúr til skreytinga.

Að venju verður 10. bekkur með opið kaffihús í matsalnum þar sem hægt verður að kaupa sér vöfflu og skúffuköku ásamt drykkjum.

Nemendur frá Tónlistarskóla A-Hún. koma svo og spila fyrir gesti á kaffihúsi 10. bekkinga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir