Notar sjávarleður í listaverk á Ólympíuleikunum
Listamaðurinn Norður-Írski, Maurice Orr, sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í október 2009 hefur verið tilnefndur hefur verið til þess að halda sýningu í tengslum við Ólympíuleikanna í London og kallast hún „London 2012 Cultural Olympiad“.
Samkvæmt heimasíðu listamannsins hafði dvöl hans á Íslandi mjög mikil áhrif hann, bæði á hans persónu og listsköpun hans. Á Skagaströnd gerði hann myndasafn innblásnar af landslagi Íslands, t.d. af mýrarlendi og af snævi þöktum fjöllum.
Í sýningunni í London mun hann sýna fjórar stórar innsetningar sem kallast „The Screaming Silence of the Wind“, sem gæti verið þýtt sem Æpandi þögn vindsins. Á Íslandi fékk hann þá hugmynd að nota sjávarleður í verkið frá Sjávarleðri á Sauðárkróki en fyrirtækið heimsótti hann á meðan á dvöl hans stóð.