Notendastýrð persónuleg aðstoð fyrir fatlað fólk - tilraunaverkefni
Byggðasamlag um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra auglýsir eftir þátttakendum í sérstakt þróunar- og tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) á þjónustusvæði byggðasamlagsins. Í tilraunaverkefninu geta tekið þátt þeir sem eiga lögheimili í Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Sveitarfélaginu Skagafirði, Akrahreppi, Skagabyggð, Sveitarfélaginu Skagaströnd, Blönduósbæ, Húnavatnshreppi og Húnaþingi vestra.
Á vef Skagafjarðar segir að samtök fatlaðs fólks hafi lengi talað fyrir þessu fyrirkomulagi sem nauðsynlegum valkosti. NPA felur í sér að notandinn fær greiðslur í stað þjónustu, velur sér og ræður aðstoðarfólk sjálfur, sér um verkstjórn, ákveður sjálfur hvernig aðstoðarfólk nýtist.
Umsóknarfrestur um þátttöku í verkefninu er til 7. september 2012 og skulu umsóknir berast til viðkomandi félagsþjónustu en þar er hægt að fá umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar.
Sjá auglýsinguna HÉR