Notkun hjálma og bílbelta
Við nemendur í starfskynningu töluðum við Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjón um notkun hjálma og bílbelta. Hann sagði að notkun bílbelta hefði aukist í gegnum árin en þó einn og einn noti ekki bílbelti. Algengara er að fólk í aftursæti noti bílbelti síður. Sjalgæft er að þeir sem eru á mótorhjólum og öðrum bifhjólum noti ekki hjálma. Ekki er skylda að nota hjálm á reiðhjóli eftir 15 ára aldur þó að þeir séu mikilvægur öryggisbúnaður.
Algengasta orsökin á því að fólk noti ekki bílbelti er aðallega hugsunarleysi. Sumt fólk sem ekur innanbæjar finnst ekki taka því að setja á sig bílbelti þó að það sé alltaf mikilvægt að vera með bílbelti. Sumum krökkum finnst “töff” að vera hjálmlaus en það er ekki töff að slasa sig ef maður lendir í slysi því það getur skipt sköpum. Mikilvægt er að tala við fólk um öryggi með hjálm og bílbelti, að gera það meðvitað um áhættuna.
Mikil bylting hefur orðið í sambandi við öryggi barna í bílum eins og barnastóla og sessur. Sumir halda að það sé í lagi að setja barn sem er of lágt fyrir bílbeltið í sætið en svo er ekki, öryggi þeirra skiptir miklu máli og mikilvægt er að setja barn sem er of lágt í stól eða sessu. Ef fólk er ekki með bílbelti á ferð er það sektað um brot á lögum. Ef barn undir 15 ára aldri notar ekki hjálm á reiðhjóli er það aðallega á ábyrgð foreldra en tekið er til greina að þau geti ekki fylgst með barninu öllum stundum.
Mörg slys hafa orðið vegna skeytingaleysis um notkun bílbelta, áhættan er meiri á banaslysum fyrir þá sem nota ekki bílbelti. Þess vegna er mikilvægt fyrir börn jafnt sem fullorðna að muna eftir þessum öryggisbúnaði og hafa varann á í umferðinni.
/Sævar Óli Valdimarsson, Jórunn Rögnvaldsdóttir og Dagur Bjarki Sigurðsson.