Ný dælustöð tengd og ekkert heitt vatn á meðan
Í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum segir að þann 1. nóv. kl. 10. verður unnið að tengingum í nýrri dælustöð við bæinn Marbæli. Sökum þessa verður heitavatnslaust frá Marbæli að Birkihlíð, suðurhluta Hegraness og Hofstaðaplássi frá kl. 10 á morgun 1. nóv. og fram eftir degi.
Notendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.