Ný og endurbætt dvalardeild HSB formlega opnuð
Ný og endurbætt dvalardeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi var formlega tekin í notkun laugardaginn 20. júlí s.l. en verkið fólst í endurnýjun annarar álmu dvalardeildarinnar. Eins og flestir Húnvetningar vita þá er sá helmingur hússins sem hýsir dvalardeildina kominn á sextugsaldurinn og því löngu tímabært að færa aðstöðuna þar til nútímans.
Framkvæmdunum, sem unnar voru í vetur og vor, má skipta í þrjá verkhluta. Fyrst skal talin endurnýjun á salernum og baðaðstöðu ásamt því að herbergi vistmanna voru stækkuð og skipt var um hurðir, gólfefni og innréttingar. Næst var gerð flóttaleið frá fjórðu hæð til að uppfylla kröfur um eldvarnir og í þriðja lagi voru gluggar endurnýjaðir.
Frá vígslu dvalardeildarinnar. Ljósm. www.hsb.is
Þegar farið er í svona viðamiklar framkvæmdir eru allar lagnir endurnýjaðar líka s.s. vatns- og frárennslislagnir, hita-, síma- og raflagnir auk tölvulagna, bruna- og bjöllukerfis. Endanlegur kostnaður við verkið liggur ekki fyrir en verður nálægt 40 milljónum.
Frá vígslu dvalardeildarinnar. Ljósm. www.hsb.is
Aðalverktaki við verkið var Stígandi ehf. á Blönduósi ásamt fjölda undirverktaka s.s. pípara, rafvirkja og málara en verkið var unnið meira og minna af heimamönnum. Hönnun og umjón verksins var í höndum Ráðbarðs ehf. en framkvæmda- og ábyrgðaraðili verksins var Fasteignir ríkisins.
Frá vígslu dvalardeildarinnar. Ljósm. www.hsb.is
Við vígsluna flutti Valbjörn Steingrímsson, forstjóri HSB, ávarp en að því loknu tók Guðbjartur Hannesson alþingismaður og fyrrverandi Velferðarráðherra fh. Heiðbrigðisráðherra Kristjáns Þórs Júlíussonar hina nýju endurbættu álmu í notkun. Að vígslunni lokinni var boðið upp á kaffi og meðlæti. Húni.is segir frá þessu.