Nýársfagnaður í Húnaveri
Nýársfagnaður Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórsins verður haldinn í Húnaveri þann 11. janúar næstkomandi og hefst samkoman klukkan 20:30.
Boðið verður uppá söng, gamanmál og veislumáltíð að hætti Húnavers, síðan mun hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar leika fyrir dansi.
Miðaverð er 5.500 krónur.
Vinir og velunnarar kóranna eru hvattir til að fjölmenna og fagna nýju ári með kórfélögum
Þátttökutilkynningar skulu hafa borist til undirritaðra fyrir 7. janúar næstkomandi.
Péturs Péturssonar, símar 452-4349/821-4349 netfang: holabaer@emax.is,
Þorleifs Ingvarssonar, símar 452-7150/893-4006 netfang: solheim@emax.is,
Valborgar Hjálmarsdóttur símar 453-8108/869-8108 netfang: valborgjh@simnet.is.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Kórarnir.