Nýárskveðja frá Skotfélaginu Markviss
Stjórn skotfélagsins Markviss óskar félagsmönnum sínum sem og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs,og þakkar fyrir samstarf og stuðning á árinu sem var að líða. Árið 2011 var á margan hátt gott ár í starfsemi félagsins,Markviss átti keppendur á 8 mótum og skutu þeir til úrslita á þeim öllum. Norðurlandsmeistara titillinn hélst innan félagsins,en Bergþór Pálsson vann norðurlandsmótið sem fram fór á Akureyri að þessu sinni þann 13 ágúst.
2 alþjóðleg mót voru haldin hérlendis síðastliðið sumar(SIH-OPEN og RVK- OPEN)og náðu keppendur Markviss verðlaunasæti á þeim báðum,Guðmann Jónasson hafnaði í 3 sæti á SIH-OPEN í byrjum júlí og Bergþór Pálsson í 3 sæti á RVK-OPEN í lok ágúst,þá hafnaði Bergþór í 2 sæti á Bikarmóti STÍ sem haldið var samhliða RVK-OPEN.
Félagið hélt að venju landsmót í júli og var þar sett nýtt Íslandsmet,en Sigurþór Jóhannesson út Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar bætti þar sitt eigið met frá árinu 2009.
Félögum í Markviss fjölgaði jafnt og þétt á liðnu ári, og eru nú skráðir í það rúmlega 60 félagarog fer þeim fjölgandi,er það von okkar að sem flestir þeirra muni sjá sér fært að mæta á skotsvæðið þegar æfingar hefjast í vor,bæði til að prófa íþróttina og eins í spjall og kaffi.
Fyrir hönd stjórnar
Skotf.Markviss
Guðmann Jónasson