Nýir dagskrárliðir í bland við eldri á Húnavökuhátíð

Frá Húnavökuhátíðinni.
Frá Húnavökuhátíðinni.

Skipulagning Húnavökuhátíðarinnar 2016 er í fullum gangi en hátíðin mun fara fram dagana 15. - 17. júlí n.k. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði í ár eins og áður en þó að sjálfsögðu með nýjum dagskrárliðum í bland við eldri. 

„Meðal breytinga frá fyrri árum má nefna að við stefnum að því að setja hátíðina formlega seinnipartinn á föstudeginum í stað fimmtudagsins áður og vera um leið með bæjargrillið það kvöld. Einnig leggjum við til sameiginlegt litaþema fyrir allan bæinn í heild sinni með áherslu á samvinnu íbúa bæjarins og höfum við tillögu um að litur bæjarins verði rauður og merki bæjarins verði Ísbjörn og leggjum um leið niður keppni á milli gatna og hverfa. En auðvitað getur hver og einn skreytt eins og hann vill,“ segir í fréttatilkynningu frá skipuleggjendum. 

Nánari drög að dagskrá verður kynnt á næstu vikum.

Fleiri fréttir