Nýir göngustígar í Vatnahverfi
Í Vatnahverfi í Austur-Húnavatnssýslu hafa verið lagðir gönguslóðar milli trjánna til að auðvelda för fólks um þetta fallega útivistarsvæði. Þar er til að mynda hægt að ganga um 4,4 km hring og er mælt með að byrja hjá skógræktarskilti og ganga fyrst eftir gamla Skagastrandarveginum.
Á Húnahorninu er sagt frá þessum endurbótum á gönguslóðunum og bent á að vegna rigninga undanfarið séu stígarnir nokkuð blautir og forugir og því þurfi að huga vel að fótabúnaði.
Þá skorar Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga á íbúa svæðisins að aðstoða við lagningu stíga, merkingu þeirra, söguskilti, gerða áningarstaða og fleira sem getur gert Vatnahverfi að þeirri paradís útivistar sem alla vilja hafa í nágrenni sínu.