Nýir leigutakar með Laxá í Refasveit
Nýir leigutakar hafa tekið við Laxá á Refasveit en það eru þeir Atli Þór Gunnarsson á Mánaskál, Benedikt Sigfús Þórisson í Skrapatungu og Sindri Páll Bjarnason á Neðri-Mýrum. Skipulagi veiði í ánni verður breytt á næsta tímabili og selt verður sér í Norðurá.
Á næsta tímabili verður heimilt að halda eftir einum laxi á hverja stöng daglega en eftir það má veiða og sleppa að vild. Þá verður mælst til að veiðimenn sleppi hryggnum lengri en 70 sm Eru þetta aðgerðir til að byggja upp stofn árinnar enn frekar.
Veiðileyfi í Norðurá verða seld sér en ekki með veiðileyfum í Laxá eins og verið hefur og er það gert til að reyna að auka veiði í Norðurá. Veiðimenn hafa lítið reynt fyrir sér í ánni fram að þessu. Urriði er staðbundinn í ánni og að auki hefur laxi verið sleppt í ánna. Sleppa skal öllum laxi veiddum í Norðurá en taka má allan urriða.
Veiði í Laxá á síðasta ári var góð eða 475 laxar í heildina. Meðalveiði Laxár síðastliðin fimm ár var 320 laxar á 2-3 stangir. Sala veiðileyfa er hafin og er hægt að panta veiðileyfi á síðunni www.refasveit.is.