Nýjar endurvinnslutunnur væntanlegar í Blönduósbæ
Samkvæmt vef Blönduósbæjar, verður pappírstunnum dreift við hvert heimili á Blönduósi á næstu dögum. Er tunnunum ætlað að taka við öllum pappír í endurvinnslu en bæklingi verður dreift með þeim en þar er að finna upplýsingar um það sem má fara í tunnurnar og hvað eigi að fara með á endurvinnslustöðina.
Þá eru íbúar hvattir til að koma tunnunum vel fyrir og festa þær vel svo þær fjúki ekki í næsta hvassviðri. Tunnurnar skulu staðsettar fyrir framan húsið og aðgengið hindrunarlaust. Þær verða losaðar á þriggja vikna fresti en hægt er að nálgast upplýsingar um losunardagana á heimasíðu bæjarins.
Blönduósbær mun, frá og með 1. ágúst 2016, hætta að niðurgreiða á móti íbúum, þá endurvinnslutunnu, sem er á vegum Sorphreinsunar VH ehf. og eru í notkun í dag, fyrir marga flokka.
Hægt er að semja við Sorphreinsun VH ehf. um að vera áfram
með þá tunnu og er aðilum bent á að hafa samband við Vilhelm í síma 893 3858 eða
með tölvupósti vilhelm@gamar.is