Nýjustu laxveiðitölur

Samkvæmt nýjustu laxveiðitölum á vefnum angling.is er Blanda í þriðja sæti yfir aflahæstu laxveiðiár sumarsins en þar er búið að veiða 337 laxa , sem er um 40% af heildarveiði síðasta sumars, en þá veiddust 832 laxar.

Úr Miðfjarðará eru komnir 128 laxar, 57 úr Vatnsdalsá, 32 úr Víðidalsá og 8 úr Hrútafjarðará og Síká. Tölur úr Laxá í Ásum eru ekki komnar inn á vefinn, en hún opnaði fyrir fáeinum dögum.

Fleiri fréttir