Nýprent festir kaup á nýrri prentvél

Í gær var stór dagur í sögu Nýprents á Sauðárkróki en þá var skrifað undir samning um kaup á splunkunýrri prentvél. Að sögn Þuríðar Hörpu Sigurðardóttir, framkvæmdastjóra Nýprents, er um mikið framfaraskref að ræða sem eykur samkeppnishæfni prentsmiðjunnar til mikilla muna.

Um er að ræða fjögurra lita prentvél af gerðinni Heidelberg Speedmaster 52 af fullkomnustu gerð sem eykur gæði og vinnsluhraða í prentun svo um munar og gerir störf í prentsal hagkvæmari. Nýja vélin leysir af hólmi 15 ára gamla tveggja lita Heidelberg Speedmaster prentvél sem hefur reynst vel.

Heidelberg Speedmaster 52 prentvél eins og væntanleg er í apríl. Heidelberg Speedmaster 52 prentvél eins og væntanleg er í apríl.

-Þetta er mikil fjárfesting fyrir lítið fyrirtæki, segir Þuríður Harpa. -Ég reikna með að vélin verði komin til okkar um miðjan apríl en það mun sennilega taka um viku að setja hana upp. Með tilkomu prentvélarinnar sjáum við fram á að geta bætt verulega við okkur verkefnum.

Sigurður, Þuríður Harpa, Erling og Guðni við gömlu vélina. Sigurður, Þuríður Harpa, Erling og Guðni við gömlu vélina. Ljósm./BÞ

Tveir fulltrúar frá umboðsaðila Heidelberg á Íslandi, Nýherja, þeir Sigurður Jóhannsson vörustjóri prentsmiðjulausna og Erling Ásgeirsson forstöðumaður, mættu galvaskir á Krókinn í gær til að undirrita samninginn ásamt Þuríði Hörpu.

-Þetta er Rollsinn í prentuninni, segir Guðni Friðriksson prentari kampakátur en hann sér fram á að gamall draumur rætist þegar fjögurra lita græjan verður komin í gagnið.

Fleiri fréttir