Nýprent Open, barna- og unglingamótið
Nýprent Open, barna- og unglingamótið verður haldið á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki þann 30. júní nk.
Mótið hefst kl. 08:00, sunnudaginn 30.júní og verða elstu ræstir út fyrst og yngstu síðast.
Ræst verður í tvennu lagi og verðlaunaafhending verður einnig í tvennu lagi.
Mótið er fyrir alla, byrjendur sem lengra komna.
Mótið er flokkaskipt og kynjaskipt.
Flokkarnir eru þessir:
17-18 ára piltar og stúlkur – 18 holur
15-16 ára drengir og telpur – 18 holur
14-ára og yngri strákar og stelpur – 18 holur
12 ára og yngri strákar og stelpur sem spila 9 holur
Byrjendaflokkur strákar og stelpur spilar 9 holur af sérstaklega styttum teigum
Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is
Nándarverðlaun verða veitt og vippkeppni í öllum flokkum
Viðurkenning fyrir flesta punkta með forgjöf á 18 holu flokkunum, virk forgjöf er skilyrði.
Mótsgjald er 1.500 kr
Golfklúbbur Sauðárkróks hvetur alla til að taka þátt í þessu skemmtilega móti og bendum sérstaklega á byrjendaflokkinn.
Þeir sem vilja skrá sig í mótið en hafa ekki aðgang inn á www.golf.is geta sent upplýsingar á hjortur@fjolnet.is eða hringt í síma 821-7041.
Sérstakur styrktaraðili mótsins nú eins og undafarin ár er Nýprent ehf.
Mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð barna og unglinga og er að þessu sinni fyrsta mótið í mótaröðinni á þessu sumri.