Nýr framkvæmdastjóri Selaseturs
Skipt var um framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á Hvammstanga nú á dögunum en Unnur Valborg Hilmarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri, sagði starfi sínu lausu í byrjun sumars. Sigurður Líndal Þórisson tekur við stöðunni og hefur störf þann 1. október. Unnur mun gegna starfi framkvæmdastjóra þangað til. Þetta kemur fram á vef Selasetursins.
Sigurður er frá Lækjamóti í Víðidal, en hefur búið í Lundúnum í 20 ár. Síðastliðin fjögur ár hefur hann unnið hjá Expedia sem er stærsta ferðaþjónustufyrirtæki heims. Þar kom hann m.a. að stjórn á flóknu verkefni sem unnið var á 20 tungumálum, í þremur heimsálfum, og kostaði rúman milljarð króna.
Sigurður er með leikarapróf frá Arts Educational London School of Drama; M.A. gráðu í listastefnu og -stjórnun frá Birkbeck College, University of London; og kennsluréttindi frá Strode’s College.
Sigurður hefur leikstýrt á sjötta tug leikverka, og kenndi við suma virtustu leiklistarskóla Bretlandseyja í meira en áratug, auk þess að vera aðstoðarleikhússtjóri Tabard leikhússins í Lundúnum í 3 ár.
Sigurður er giftur Gretu Clough, brúðulistamanni og leikara frá Vermont-fylki í Bandaríkjunum. Þau eiga ársgamla dóttur, Elínu Rannveigu Líndal.