Nýr gagnvirkur vefur fyrir Parkinson sjúklinga

Nýr gagnvirkur vefur er nú í vinnslu fyrir Parkinson sjúklinga og aðstandendur þeirra og á hann að auðvelda þeim að takast á við sjúkdóminn. Verkefnið nefnist LiveWell og er markmiðið að þróa fræðslu- og samfélagsvef á Internetinu fyrir þá auk heilbrigðisstarfsmenn. LiveWell verkefnið (www.livewell-community.eu) sem byrjaði í október 2012 mun auðvelda aðgengi að upplýsingum um Parkinson sjúkdóminn sem eru settar fram á einfaldan og hnitmiðaðan hátt m.a. hvernig hægt er að takast á við sjúkdóminn og bæta líðan sjúklinga og aðstandenda. Með þessi markmið í huga er gagnvirkur samskipta-, upplýsinga-, fræðslu- og þjálfunarvefur þróaður.

Þjálfunarsvæðið mun bjóða upp á gagnvirkt efni, æfingar og upplýsingar um hvernig sjúkdómurinn getur þróast og hvernig hægt er að lifa með honum. Samskiptasvæðið mun auðvelda samskipti, þar munu Parkinson sjúklingar geta deilt reynslu sinni og þekkingu. Heilbrigðisstarfsmenn munu þar hafa möguleika á fylgjast með framförum sjúklinga sinna.

Parkinson samtökin geta jafnframt notið góðs af niðurstöðum verkefnisins, þar sem samstarfsaðilar verkefnisins ætla að óska eftir að samtökin taki að sér umsjón og viðhald vefsins þegar verkefninu lýkur.

Byrjað er að þróa fræðsluefnið sem verður hægt að nálgast á vefnum. Fræðsluefninu verður skipt í eftirfarandi kafla: „Að lifa með Parkinson sjúkdóminum“, „Að hafa stjórn á Parkinson sjúkdóminum“, „Parkinson og þú“, „Leiðbeiningar fyrir aðstandendur“, „Lyfja- og óhefðbundin meðferð“, „Ráðleggingar um heilbrigt mataræði.“ Auk þess verður boðið upp á leiki, æfingar, gagnlegar ráðleggingar til að skipuleggja daglegt líf sjúklingsins og dagbók til að halda utan um  sjúkdómseinkenni o.fl.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins styrkir LiveWell verkefnið sem portúgalska fyrirtækið INOVA + stýrir og unnið er í samstarfi við þátttakendur frá Bretlandi, Spáni, Austurríki, Íslandi, Rúmeníu og Slóveníu.

Fleiri fréttir