Nýr heitur pottur við Sundlaug Skagastrandar

Sundlaug Skagastrandar/Ljósmynd:Berglind Þorsteinsdóttir
Sundlaug Skagastrandar/Ljósmynd:Berglind Þorsteinsdóttir

Þann 22. júní fór fram fundur hjá sveitastjórn Skagastrandar.
Þar var lögð fram tillaga að nýjum heitum potti við Sundlaug Skagastrandar en tillagan var unnin af Ágústi Hafsteinssyni, arkitekt.

Ráð er gert fyrir að heiti potturinn verði 10-12 manna og að við hann hann verði settur glerveggur í stað núverandi skjólgirðingar.  Áætlaður kostnaður við framkvæmdina eru 6,7 milljónir króna.
Samþykkt var að ráðast í breytingarnar á sundlauginni samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Í fjárfestingaráætlun sveitastjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir verkinu en sveitastjóranum mun taka saman viðauka fyrir næsta fund.

Fleiri fréttir