Nýr hjólastóll gefinn í minningu Herdísar Einarsdóttur

Á myndinni eru Sigurbjörg Helga Birgisdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Helga Margrét Jóhannesdóttir, Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir, Guðmundur Finnbogason og Jóhann Guðmundsson.  Myndina tók Hlynur Tryggvason

Nú nýverið færðu Hollvinasamtök HSB Heilbrigðisstofnunninni á Blönduósi nýjan hjólastól.
Stóllinn er gefinn í minningu Herdísar Einarsdóttur, en hún starfaði við stofnunina í hartnær 50 ár.

Í mars sendu samtökin styrktarbeiðni að upphæð 10.000 krónur til 18 fyrirtækja í sýslunni.
það voru 9 fyrirtæki sem styrktu þau. Þá minntust aðstandendur Herdísar heitinnar hennar með myndarlegu fjárframlagi og það gerði þeim kleift að kaupa stólinn.
Hann mun sannarlega koma að góðum notum fyrir skjólstæðinga HSB.
Hollvinasamtökin þakka öllum þeim sem hafa stutt þau hjartanlega fyrir stuðninginn.

Fleiri fréttir